
Jennifer Aniston er ein margra kvenna sem hafa fengið sér hárlengingar. Hún segist sjálf ekki hafa verið með öllum mjalla þegar hún ákvað að fá sér hárlengingar og það hafi tekið eitt og hálft ár fyrir hárið að jafna sig. Reuters
Hárlengingar geta skemmt hár varanlega
Hárlengingar ætti að banna, að mati stórs hóps hárvísindamanna í Bretlandi. Þar í landi bjóða æ fleiri hárgreiðslustofur upp á ódýrar hárlengingar og það þrátt fyrir að starfsfólkið hafi alls ekki hæfni til að setja þær í með réttum hætti. Frá þessu er sagt á vef BBC.
Vísindamenn segja þetta leiða til þess að sífellt fleiri ungar konur þjáist af ýmsum ótímabærum hárvandamálum s.s. skallablettum og hárlosi. Hárvísindamaðurinn Barry Stevens fer fyrir teymi sem rannsakað hefur hliðarverkanir hárlenginga. „Það geta verið ansi alvarlegar afleiðingar af því að vera með hárlengingar í langan tíma í senn. Það getur hreinlega valdið varanlegum skemmdum á hári fólks."
Vísindamenn í Bandaríkjunum og á Ítalíu eru á sama máli og segja vandamál tengd hárlengingum vera mun algengari en skráð tilfelli segja til um. Í einhverjum tilfellum virðast konur ekki eiga við nein vandamál að stríða en við nánari athugun sést að hársvörðurinn er í verulegu ólagi.
Barry Stevens hefur sjálfur komið að ráðgjöf til hjálpar mörgum konum sem farið hafa í mál eftir að hár þeirra var eyðilagt með hárlengingum. Eftir margra ára rannsóknir hefur hann komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að banna hárlengingar sem eru límdar, saumaðar eða festar með málmhringjum í hársvörðin.
Til baka








Senda inn efni

