[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Konur geta orðið þungaðar fram eftir öllum aldri.

Konur geta orðið þungaðar fram eftir öllum aldri. mbl.is

Tækni & vísindi | mbl.is | 9.2.2010 | 14:56

Konur ekki ófrjóar eins snemma og þær halda

Læknum í Bretlandi þykir nú ástæða til þess a minna á að konur geti eignast börn fram eftir öllum aldri. Sérfræðingar óttast að eldri konur láti getnaðarvarnir róa þar sem þær telji víst að þær séu komnar úr barneign.

Talsmenn bresku fjölskyldustofnunnarinnar (FPA) telja að skilaboð til kvenna um að þær verði að eignast börn áður en þær ná ákveðnum aldri hafi „gengið of langt" og séu misvísandi. Staðreyndin sé sú að þrátt fyrir að dragi úr frjósemi með aldrinum geti konur hæglega orðið óléttar á fertugs,- fimmtugs,- og jafnvel sextugsaldri.

„Þótt skilaboðin um að frjósemi minnki með aldrinum séu mikilvæg þá er of mikið gert úr þeim á sama tíma og mikið er gert úr ótímabærri þungun unglinga. Þetta sendir misvísandi skilaboð til kvenna og samfélagsins um að það séu aðeins ungar konur sem verði óléttar og leiðir til þess að eldri konur trúa því gjarnan að þær séu orðnar ófrjóar löngu áður en sú er raunin," segir Julie Bentley, framkvæmdastjóri FPA.

Í Bretlandi sýnir tölfræðin að tíðni fóstureyðinga er jafnhá í aldurshópnum milli 40 til 44 ára og hjá stúlkum undir 16 ára aldri, eða 4 af hverjum 1.000. Margar þeirra eldri kvenna sem verða óléttar fara í fóstureyðingu vegna þess að í ljós kemur að eitthvað er að fóstrinu, líkt og algengt er með eldri mæður. Að sögn FPA hefur það hinsvegar sýnt sig að inn á milli eru líka margar eldri konur sem fara í fóstureyðingu vegna þess að þær ætla sér ekki að eignast fleiri börn, en hættu samt að nota getnaðarvarnir því þær gerðu ráð fyrir því að þær væru orðnar of gamlar til að verða óléttar.

Því hefur verið hrint af stað herferð í Bretlandi þar sem konur eru hvattar til að halda áfram að nota getnaðarvarnir fram yfir tíðarhvörf vilji þær ekki verða óléttar.

Frétt BBC

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tækni & vísindi — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Mánudaginn 1. mars
Sunnudaginn 28. febrúar
Föstudaginn 26. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar