Breytir CIA texta Wikipedia?

Skanni, sem notaður er á Netinu til að komast að því hverjir breyta upplýsingum á alfræðivefnum Wikipedia, virðist hafa leitt í ljós að starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar CIA hafi breytt skrifum á vefnum, m.a. um forseta Írans.

Skanninn virðist einnig hafa leitt í ljós að starfsmenn Páfagarðs hafi breytt skrifum um Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein á Norður-Írlandi.

Bandarískir rannsóknarmenn hönnuðu skannann sem fer yfir 5,3 milljónir breytinga á texta Wikipedia og rekur þær til netfanga þeirra sem breyta textanum. Ókeypis aðgangur er að Wikipedia og hver sem er getur breytt textanum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert