Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar, segir í tilkynningu að þetta sé mikill heiður fyrir sig og sitt fólk, sérstaklega bruggmeistarann Guðmund Mar Magnússon.
Fulltrúar BayWa AG í München höfðu samband við okkur eftir Beer Star keppnina og óskuðu eftir að fá að flytja inn heilan gám af Egils Premium til að nota við kynningarstörf. Miðað við bjórframleiðsluna á þessu svæði þá er þetta eins og við værum að flytja kaffi til Brasilíu eða ísmola til Grænlands," segir Andri Þór í tilkynningunni.