Við gerum ekki ráð fyrir að fullnýta kvótann, enda veiðum við bara fyrir innanlandsmarkað. Við veiðum 10 til 15 dýr núna og síðan verða veidd 6 dýr í vísindaskyni um mánaðarmót ágúst og september. Það dugir markaðnum fram á næsta sumar, segir Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna ehf.
Gunnar segir Hrefnuveiðimenn ehf. hafa undirbúið sölu hvalkjöts til Japans og þeir séu komnir með vilyrði fyrir sölu á 300 til 400 dýrum. Ef sala Hvals hf. á langreyðum á Japansmarkaði gengur eftir gerir Gunnar ráð fyrir því að hrefnuveiðimenn fái kvóta á næsta ári til að selja á erlendum markaði.
Við gerum ráð fyrir því að sjávarútvegsráðherra veiti áframhaldandi kvóta til veiða í atvinnuskyni á næsta ári, segir Gunnar.