fim. 19. júlí 2012 05:30
Huang Nubo.
Skođa hafnir á Íslandi

„Kína er ađ verđa stćrsta hagkerfi heimsins. Ef viđ sjáum fyrir okkur umskipunarhöfn á Íslandi hlýtur stór hluti af vörum sem um hana fara ađ fara til Kína og Japans. Ţađ er ţví mjög mikilvćgt ađ ţessi ríki séu beinir og óbeinir ţátttakendur í slíkri vinnu,“ segir Halldór Jóhannsson, talsmađur Huang Nubo, sem miđlar Kína gögnum um hafnir hér.

Halldór segir Kínverja sýna mikinn áhuga á Íslandi og siglingum norđur af landinu og stađfestir ađ í ágúst verđi haldiđ málţing í Háskóla Íslands í tilefni af komu kínverska ísbrjótsins Snćdrekans til landsins.

Ţátttaka Kínverja nauđsynleg

Kína sé ađ verđa stćrsta hagkerfi heims og án ađkomu Kínverja sé ólíklegt ađ hćgt verđi ađ byggja upp nauđsynlega innviđi, svo sem fyrir umskipunarhöfn, á norđurslóđum.

Halldór bendir jafnframt á ađ gífurleg auđćfi kunni ađ leynast á norđurslóđum og ađ ţau geti, ásamt umskipunarhöfn, kallađ á stórfellda uppbyggingu á Austurlandi. Ţá setji ESB nú aukiđ fé í rannsóknir á svćđinu.

Trausti Valsson, prófessor í skipulagsfrćđi viđ Háskóla Íslands, hvetur Íslendinga til ađ gjalda varhug viđ áformum Kínverja hér á landi.

„Kínverjar líta á Ísland sem sérstaka vinaţjóđ. Mörg vestrćn ríki eru orđin tortryggin ţegar kínverskar sendinefndir eru annars vegar en hér á landi eru ţćr leiddar inn í innsta hring,“ segir Trausti og bendir á hugsanlegan olíuauđ í norđri.

til baka