fim. 28. mars 2024 21:00
Framámenn í flokknum sem blaðamaður ræddi við telja að Katrín sé að íhuga málið.
Býður Katrín sig fram til forseta?

Margir velta því nú fyrir sér hvort að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sé á leið í forsetaframboð.

Sjálf hefur hún ekki útilokað framboð og framámenn í Vinstri grænum, sem blaðamaður mbl.is hefur rætt við, segja hana íhuga málið.

Telja þeir flestir að Katrín gefi sér tíma til að hugsa málið mjög alvarlega yfir páskahátíðina.

Sumir þeirra sem blaðamaður hefur tekið tali segja að ákvörðun hennar muni ráðast af því hvort að hún telji sig líklega til sigurs.

Þá muni einnig hafa áhrif þau samtöl sem hún eigi eftir að eiga við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknar. Saman leiða þau þrjú þá ríkisstjórn sem setið hefur við völd frá árinu 2017.

Enginn telur framboð útilokað

Athygli vekur að enginn sem blaðamaður ræddi við telur útilokað að Katrín bjóði sig fram og ekki heldur að það sé ólíklegt.

Sumir benda á að hún hafi fengið margar áskoranir árið 2016 en hafi ákveðið að halda sig til hlés.

Hið sama gæti verið uppi á teningnum núna.

Tjáði sig um mögulegt framboð fyrst á nýársdag

Mögulegt framboð Katrínar hefur verið á milli tannanna á fólki í nokkra mánuði. Í viðtölum sem og á Alþingi hefur hún ekki útilokað framboð.

Síðast þegar mbl.is ræddi við Katrínu um málið sagði hún að fleiri væru að hvetja hana og að hún hefði ekki tekið afstöðu til mögulegs framboðs.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/03/05/fleiri_verid_ad_stiga_fram_og_hvetja_mig/

Á nýársdag, þegar Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti að hann hygðist ekki bjóða sig fram til áframhaldandi setu á Bessastöðum, ræddi mbl.is við Katrínu um mögulegt framboð.

Þá kvaðst hún ekki hafa íhugað málið en hygðist þó sitja áfram sem forsætisráðherra út kjörtímabilið.

„Ég er bara á mín­um stað og hyggst vera þar til loka kjör­tíma­bils,“ sagði Katrín þann dag í samtali við mbl.is.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/01/01/katrin_kvedst_ekki_hafa_ihugad_forsetaframbod/

Gaf loðin svör á Alþingi

Hún var þó ekki svo afgerandi í afstöðu sinni, um að sitja áfram sem forsætisráðherra út kjörtímabilið, í byrjun þessa mánaðar er hún var spurð í tvígang hvort að hún hygðist bjóða sig fram til forseta.

Það var Guðmund­ur Ingi Krist­ins­son, þingmaður Flokks fólks­ins, sem spurði hana á Alþingi um mögulegt framboð.

„Ég ætla bara að segja það að ég trúi því nú varla að í kjör­dæm­a­viku þing­manna Flokks fólks­ins hafi þetta verið eina spurn­ingin – aðal­spurn­ing­in. Þannig að ég vil bara hug­hreysta hátt­virt­an þing­mann og segja að ég er bara enn í starfi mínu sem for­sæt­is­ráðherra og verð hér áfram um sinn,“ svaraði Katrín fyrstu fyrirspurn Guðmundar. 

Hann lét þó þetta svar ekki duga og spurði Katrínu aftur: 

„Já eða nei – af eða á: Ætlar hæst­virt­ur for­sæt­is­ráðherra að bjóða sig fram til for­seta eða er hann að íhuga það?“ spurði Guðmund­ur.

Þá svaraði Katrín:

„Ég hef ekki leitt hug­ann að slíku fram­boði enda eru ærin verk­efni í for­sæt­is­ráðuneyt­inu.“

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/03/04/katrin_ekki_leitt_hugann_ad_bessastodum/

Annað hljóð komið í strokkinn

Þann 5. mars ræddi mbl.is aftur við Katrínu og er óhætt að segja að annað hljóð var komið í strokkinn frá því að mbl.is ræddi við hana á nýársdag.

„Það eru ýmis önn­ur verk­efni sem ég hef verið að sinna. Það má kannski segja að það hafa fleiri verið að stíga fram og hvetja mig til að hugsa þetta, en ég hef ekki gert það,“ sagði Katrín aðspurð.

En þú ert ekki til­bú­in að úti­loka fram­boð?

„Ég hef ekki tekið neina af­stöðu til þess og hef ekki gefið þessu þann tíma til að hugsa þetta af al­vöru,“ svaraði Katrín.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/01/03/telja_katrinu_liklegasta_i_forsetakjor/

Nokkrir stigið fram

Þegar hafa nokkrir frambjóðendur stigið fram og tilkynnt framboð. Þeirra mest áberandi eru:

Guðni forseti hefur þá sjálfur, í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins, viðurkennt að honum berist stöðugar hvatn­ing­ar og áskor­an­ir um að end­ur­skoða ákvörðun sína um að láta af embætti í sum­ar.

Virðist sem mörgum lítist ekki á blikuna

Guðni til­kynnti sem kunn­ugt er um ára­mót­in að hann muni ekki sækj­ast eft­ir end­ur­kjöri þegar öðru kjör­tíma­bili hans lýk­ur 31. júlí. Við það tæki­færi sagði hann að eft­ir vand­lega íhug­un hefði hann ákveðið að láta hjartað ráða för og láta staðar numið. Guðni hef­ur síðar sagt að hann hlakki til að snúa sér aft­ur að fræðastörf­um og kennslu.

Síðustu daga og vik­ur hef­ur mik­ill fjöldi fólks annaðhvort lýst yfir fram­boði eða lýst áhuga á fram­boði til embætt­is for­seta. Við það virðist sem mörg­um lít­ist ekki á blik­una og sæki nú fast­ar að Guðna en áður að end­ur­skoða ákvörðun sína:

„Ég hef fengið áskor­an­ir, beiðnir og spurn­ing­ar um hvort hefja megi söfn­un und­ir­skrifta en hef ekki léð máls á slíku. Sem fyrr er ég þakk­lát­ur fyr­ir góðan stuðning. Ákvörðun um að láta gott heita er hins veg­ar það stór að henni verður ekki breytt nema afar rík­ar ástæður séu til þess.“

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/03/27/gudni_nema_afar_rikar_astaedur_seu_til/

Ákvörðun ekki enn tekin á bak við tjöldin

Sumir innan Vinstri grænna segjast einmitt aðspurðir telja að Katrín sé enn orðuð við embættið vegna þess að mörgum kjósendum þyki núverandi frambjóðendur ekki starfinu vaxnir.

Velta þeir því fyrir sér hvort að ákall eftir framboði Katrínu verði jafnvel enn háværara eftir páska.

Af samtölum við framámenn í flokknum, sem og af orðum Katrínar, má ráða að hún íhugi málið alvarlega um þessar mundir. Hún sé þó enn ekki búin að taka í gikkinn, ekki einu sinni að tjaldabaki.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/03/03/thorgerdur_stydur_katrinu_i_forsetaembaettid/

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/03/14/segir_katrinu_verda_naesta_forseta_islands/

til baka