fös. 26. apr. 2024 10:17
Gísli Jóns hefur verið tekinn í slipp og er gert ráð fyrir að skipið verði komið til starfa á ný eftir helgi.
Gísli Jóns í slipp

Björgunarskipið Gísli Jóns hefur verið tekið í reglubundna slipptöku og er stefnt að því að það verði komið til starfa á ný eftir helgi.

Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu skipsins.

Þar segir að Gísli Jóns hafi farið í slipptöku að lokinni 120 sjómílna siglingu en ferðin var þjónustuferð fyrir Vesturbyggð. Siglt var með flotbryggju í togi frá Ísafirði til Patreksfjarðar.

 

Gísli Jóns var keyptur til Íslands frá Noregi árið 2019. Skipið var smíðað 1990 úr áli og er með tvær M.A.N aðalvélar 662 kW hvor og nær skipi rúmlega 27 hnúta og hefur 5,1 tonna togkraft.

Sett var ný aðalvél í Gísla jóns 2021 eftir að alvarleg bilun uppgötvaðist í bakborðsvél skipsins. Slapp sjóbjörgunarsveitin á Ísafirði við dýra viðgerð því svo gott sem ónotuð vél fékkst gefins frá björgunarsamtökunum, Redningsselskapet, í Noregi.

https://www.mbl.is/200milur/frettir/2021/09/21/nordmenn_gafu_nyja_vel_i_gisla_jons/

til baka