EVA RUZA FLYTUR PISTLA UM STJÖRNURNAR Á HVERJUM DEGI Á SINN EINSTAKA HÁTT Á K100.
Leikkonan Sophia Bush er komin út úr skápnum. Sophia gerði garðinn frægan í þáttunum One Tree Hill. Hún skrifaði pistil í tímaritið Glamour þar sem hún segist hafa orðið jafn hissa og aðrir sem heyrðu af nýja sambandi hennar. Þetta hefur eflaust verið mikill léttir því í pistlinum segist hún loks geta andað.
Sophia kynntist fótboltastjörnunni Ashlyn Harris árið 2019. Það var þó ekki fyrr en Sophia skildi við fyrrverandi eiginmann sinn, Grant Hughes, árið 2022 og Ashlyn skildi við fyrrverandi eiginkonu sína á svipuðum tíma. Þá náðu þær saman en samband þeirra varð ekki opinbert fyrr en síðasta haust.
Sögur fóru af stað um að þær hefði haldið fram hjá mökum sínum með hvor annarri en Sophia segir þær fréttir af og frá. Þær hefðu alls ekki haldið við hvor aðra heldur náð saman þegar þær voru báðar á erfiðum stað að syrgja fyrri hjónabönd.
Ég segi bara, lifi ástin!