fös. 26. apr. 2024 22:14
Susan Noles var ein þeirra sem keppti um ástir Gerry Turner í raunveruleikaseríunni.
Skilnaðurinn eyðilagði metið

Susan Noles, konan sem gaf saman Gerry Turner og Theresu Nist, parið sem fann ástina í raunveruleikaseríunni The Golden Bachelor, segir skilnað þeirra hafa eyðilagt persónulegt sem og ánægjulegt met.

Hjónin eru þau fyrstu til að skilja af þeim fjölmörgu brúðhjónum sem Noles hefur gefið saman í gegnum árin.

Hjónaband raunveruleikastjarnanna entist ekki lengi, en Turner og Nist greindu frá skilnaði sínum á dögunum eftir aðeins þriggja mánaða hjónaband. 

https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/04/12/neistinn_slokknadur_eftir_thriggja_manada_hjonaband/

Fjölbreyttur hópur kvenna yfir fimmtugu keppti um ástir hins 71 árs gamla Turner í nýjustu útgáfu raunveruleikaseríunnar. Noles var á meðal þeirra en hún kvaddi keppnina í fimmta þætti seríunnar. 

„Þeim tókst að eyðileggja metið. Þau eru þau fyrstu til að skilja,“ sagði Noles í gríni við Us Weekly. „Það var virkilega leiðinlegt að heyra um skilnað þeirra en hvorugt var tilbúið að yfirgefa heimili sitt og fjölskyldur,“ útskýrði hún. 

https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/04/17/helt_ad_hjonabandid_myndi_vara_ad_eilifu_en_ekki_3_/

Noles, sem er í góðu sambandi við raunveruleikastjörnurnar, sagði að þau væru á góðum stað og sátt með ákvörðun sína um að skilja. „Ekkert illt er á milli Turner og Nist.“

til baka