Fastur liður á laugardagsmorgnum á matarvefnum eru leyndardómsfullu uppskriftirnar úr Húsó-eldhúsinu í Hússtjórnarskólanum sem njóta mikilla vinsælda hjá lesendum matarvefsins. Að þessu sinni deilir Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans með lesendum uppskrift að fiskbollum með karrísósu sem mörgum þykja vera heimsins bestu fiskbollur. Með fiskbollunum er gjarnan boðið upp á ferskt salat, grjón, karrísósu og heimalagað remúlaði.
„Hérna í Húsó gerum við stundum nokkrar sósur með matnum, sitt sýnist hverjum og smekkur fólks getur líka verið misjafn þá er gott að hafa val. Matreiðslukennarinn okkar, Guðrún, er iðulega kenna margt í einu og þá eru stundum nokkrar sósur með matnum og nemendur geta prófað sig áfram hvað þeim þykir passa best. Til að mynda getur verið gott að fá sér heimalagað remúlaði með fiskbollunum,“ segir Marta María. Uppskriftina að remúlaðinu má finna í eldri grein hér fyrir neðan.
https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/02/03/hefur_thu_smakkad_huso_steikta_fiskinn/
Húsó-fiskbollur með karrísósu
Fiskbollur
- 800 g roð og beinlaus fiskur (ýsa eða þorskur)
- 3 ½ msk. hveiti
- 3 ½ msk. kartöflumjöl
- 1 ½ tsk. salt
- 2 tsk. laukduft eða ½ laukur
- ¼ tsk. hvítur pipar
- ½ tsk. paprikuduft
- 4 dl mjólk
- 1 egg
Aðferð:
- Skerið fiskinn í litla bita og setjið allt nema egg og mjólk í matvinnsluvél og maukið nokkuð vel.
- Bætið tveimur dl af mjólk út í og maukið meira.
- Eggið og mjólkin sem er eftir er sett út í og maukað vel.
- Mótið bollur með matskeið steikið í góðri olíu með smjörklípu (ef vill) á pönnu við góðan hita.
Karrísósa
- ½ laukur
- 2 ½ tsk. karrí
- 2 msk. smjör
- 5 dl vatn
- 1 tsk. fiskkraftur (má nota kjötkraft)
- 1 dl kalt vatn eða mjólk
- 3 msk. hveiti
Aðferð:
- Saxið lauk, bræðið smjör í potti við vægan hita og látið laukinn og karríið steikjast í smjörinu.
- Bætið vatni og fiskkrafti útí og hitið að suðu.
- Setjið kalt vatn eða mjólk og hveiti í hristiglas og hristið saman, jafnið sósuna.
- Bragðbætið með krafti, karrí eða salti.
- Má nota til dæmis kjötsoð í staðinn fyrir vatnið í sósuna ef hún er höfð með soðnu kjöti.