lau. 27. apr. 2024 12:39
Slökkviliđismenn í Ívanó-Frankívsk-hérađinu berjast viđ logana í nótt en Rússar beindu skeytum sínum ađ orkuinnviđum ţriggja hérađa.
Sóttu harkalega ađ orkuinnviđum

Rússar réđust í nótt á orkuinnviđi á ţremur svćđum í Vestur-Úkraínu eftir ţví sem greint er frá í úkraínskum fjöl- og samfélagsmiđlum. Voru ţađ héruđin Dníprópetrovsk, Ívanó-Frankívsk og Lvív sem urđu fyrir flugskeytaárásum ţegar rússneski innrásarherinn skaut 34 flugskeytum ađ skotmörkum sínum. Létust tveir í árásunum en allt ađ tíu bera benjar eftir.

Ađ sögn The Kyiv Independent, úkraínsks vefmiđils, sem birtir efni á ensku, skutu úkraínskir hermenn 21 flugskeytanna niđur áđur en ţau höfđu skotmörk sín sem voru orkuinnviđir hérađanna sem fyrr greinir.

„Búnađur varđ fyrir tjóni og í einu skotmarkanna fékk verkfrćđingur heilahristing,“ hefur netmiđillinn eftir German Galusjenkó, orkumálaráđherra Úkraínu, sem tjáđi sig um máliđ á samfélagsmiđlinum Telegram ţar sem hann sló ţó ţann varnagla ađ enn stćđi mat á tjóni nćturinnar yfir.

Lagđir inn vegna líkamstjóns

Stćrsta einkarekna orkufyrirtćki landsins, DTEK, hefur tilkynnt um töluverđar skemmdir á fjórum varmaorkuverum sínum en fyrirtćkiđ gefur ţó ekkert upp um stađsetningu veranna löskuđu.

Voru ţrettán af flugskeytunum 34 skotin niđur í Dníprópetrovsk-hérađi ţar sem orkuver í nágrenni Dnípró og Krívíi Ríh skemmdust, en frá ţví greinir hérađsstjórinn Serhí Lysak sem enn fremur skrifar á Telegram ađ tćplega fertugur karlmađur hafi hlotiđ benjar í árásinni og veriđ lagđur inn. Ástand hans sé nú stöđugt. Ţađ sama gildi um annan, 45 ára, sem einnig liggur á sjúkrahúsi eftir árás nćturinnar.

Ţá hćfđu hljóđfrá flugskeyti Rússa tvö orkuver í nágrenni Stryi og Tsjervonóhrad í Lvív ţar sem eldsvođi varđ af og tjón. Ţetta skrifar Maksím Kósitskí hérađsstjóri um á samfélagsmiđlum. Ekki greinir hann frá meiđslum og segir auk ţess ađ byggingar í nágrenninu hafi sloppiđ vel.

Rússar herđa árásir sínar

Enn eitt orkuveriđ skemmdist svo í Ívanó-Frankívsk en ţar kom upp eldur sem slökkviliđ knúđi von bráđar til kyrrđar. Er ţetta haft eftir ţriđja hérađsstjóranum, Svitlönu Onítjuk. Í hennar ranni meiddist enginn.

Eiga skotmörkin ţađ sammerkt ađ vera í vesturhluta landsins, mörg hundruđ kílómetra frá víglínum Rússa og Úkraínumanna eins og ţćr liggja nú.

Rússar hafa upp á síđkastiđ hert flugskeyta- og drónaárásir sínar á nágrannaríkiđ stríđshrjáđa og einkum beint skeytum sínum ađ nauđsynlegustu innviđum. Hefur fjöldi orkuvera ţar orđiđ illa úti, svo sem Trypillia-veriđ, höfuđorkuver Kćnugarđs auk hérađanna Sjítómír og Tsjerkasí.

Árásir í mars drógu úr framleiđslugetu DTEK-orkuframleiđandans um heil 80 prósent.

Eftir ţví sem Volodímír Selenskí Úkraínuforseti greinir frá ţarfnast ţegnar hans 25 Patriot-loftvarnakerfa til ađ verja landiđ loftárásum Rússa.

The Kyiv Independent

Al Jazeera

The National

til baka