lau. 27. apr. 2024 18:57
Eiríkur Ingi Jóhannsson mætti og skilaði inn framboði sínu til yfirkjörstjórnar í gær.
Eiríkur þarf 15 undirskriftir í viðbót

Landskjörstjórn hefur gefið Eiríki Inga Jóhanssyni forsetaframbjóðanda frest til að safna 15 meðmælendum til viðbótar í Sunnlendingafjórðungi.

Þetta tilkynnir hann í myndbandi á Facebook. Fresturinn rennur út kl 17.00 á morgun.

Hann segist hafa safnað 1524 gildum undirskriftum en þrátt fyrir það vanti hann enn 15 í Sunnlendingafjórðungi.

 

 

til baka