16. desember, 2006
Sigurborg Gísladóttir

Sigurborg Gísladóttir

Sigurborg Gísladóttir fæddist á Svarthamri við Álftafjörð 27. apríl 1923. Hún lést á heimili sínu, Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 7. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigríður Guðmundsdóttir, f. 1900, d. 1988, og Gísli Guðmundsson, f. 1884, d. 1969. Sigurborg var alin upp hjá afabróður sínum Ásgeiri Kristjánssyni og konu hans Hinriku Sigurðardóttur. Uppeldissystkini Sigurborgar eru Kristjana, Anna, Steinþór látinn, Sigríður Katrín látin og Hinrika látin. Hálfsystkini hennar sammæðra eru Jón Ásgeir látinn, Ólöf Ragnheiður, Jóna Björg látin, Bjarnfríður Edda látin, Guðmundur látinn, Hólmfríður Jóna, Andri Sigurður látinn og Hulda Guðrún.

Hinn 8. júní 1946 giftist Sigurborg Þorvaldi Ásgeirssyni, f. 7. febrúar 1921, d. 29. júlí 2003. Foreldrar hans voru Ásgeir Þorvaldsson og Hólmfríður Zophaníasdóttir. Börn Sigurborgar og Þorvaldar eru: 1) Ásgeir Ingi, f. 16. júlí 1948, maki Guðfinna Sveinsdóttir, f. 1. maí 1954, synir þeirra eru a) Sveinn, f. 8. janúar 1974, maki Sigrún Ómarsdóttir, börn þeirra Guðfinna Dís og Gunnar Bjarki og b) Borgþór, f. 20. mars 1980. Börn Ásgeirs og fyrri konu hans, Sigrúnar Pálsdóttur, f. 1. nóvember 1951, eru a) María, f. 13. desember 1968, börn hennar og Kristófers Jónssonar eru Tinna Rún, Kolfinna og Kristófer Jón og b) Þorvaldur, f. 30. nóvember 1971, maki Soffía Hjálmarsdóttir, börn þeirra eru Ásgeir Þór, Jökull Elí og Kristín Inga. 2) Hrefna, f. 29. desember 1951, maki Valgeir Benediktsson, f. 12. mars 1949, börn þeirra eru a) Ingibjörg, f. 13. júní 1973, maki Jónas Gylfason, börn þeirra Sölvi Þór og Hrafnhildur Kría, b) Elísa Ösp, f. 14. september 1977, maki Ingvar Bjarnason, börn þeirra Kári og Þórey og c) Rakel, f. 15. október 1983, unnusti Einar Óskar Sigurðsson. 3) Olgeir, f. 19. febrúar 1961, maki Sigríður Óskarsdóttir, f. 23. nóvember 1962, börn þeirra eru a) Helena Dögg, f. 30. október 1980, maki Jóhannes Friðrik Ægisson, börn þeirra Diljá Dröfn og Auðunn Andri, b) Einar Björgvin, f. 3. febrúar 1984, unnusta Kristbjörg Víkingsdóttir og c) Sigurborg Lilja, f. 17. júní 1993.

Sigurborg ólst upp á Svarthamri við Álftafjörð, hún bjó á Blönduósi frá 1945 til 1971 og stofnaði þar fjölskyldu. Þar vann hún við ýmis verslunar- og skrifstofustörf auk þess að vera ein af stúlkunum á stöðinni. Árið 1971 fluttist fjölskyldan til Hafnarfjarðar þar sem Sigurborg vann lengst af á Hrafnistu. Frá árinu 1998 bjuggu þau hjónin í Vestmannaeyjum.

Útför Sigurborgar verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 11.