[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
Laugardagur | 13. nóvember | 2010

Vöndum valið fyrir Stjórnlagaþing

Pétur Björgvin Þorsteinsson


Góður hópur er í framboði til Stjórnlagaþings, fólk sem ég álít að sé þverskurður samfélagsins. Ég treysti kjósendum til þess að vanda valið úr þessum hópi og velja þau sem hafa traust, þekkingu, reynslu og þor til þess vandasama verkefnis sem vinnan á Stjórnlagaþingi er. Sjálfur var ég hvattur til þess að bjóða mig fram og ég vil ekki bregðast þeim sem hvöttu mig til dáða, en ég verð að viðurkenna að það er ekki auðvelt að standa upp og hrópa: ,,Kjósið mig, kjósið mig."

 

Miklu frekar vil ég hvetja fólk til þess að velja góðan hóp til starfans og horfa á samhengið, því ef að ný stjórnarskrá á að duga fólkinu í landinu öllu þá þarf að velja fólk bæði af landsbyggðinni og af borgarsvæðinu. Ekki er síður mikilvægt að velja bæði konur og karla til starfans og að bakgrunnur þeirra sem á þingið fara sé ekki of einsleitur.

 

Sjálfur er ég trúaður karlmaður af landsbyggðinni, góð blanda gæti þá til dæmis falið í sér að setja mig á kjörseðilinn ásamt konu sem kennir sig við trúleysi og kemur af borgarsvæðinu. Þetta er nefnt sem dæmi. Kannski þykir þér trú engu máli skipta í þessu samhengi og ekkert við það að athuga. Hvert og eitt okkar þarf að velta þessu fyrir sér. Vonandii hugsa því sumir um val eftir starfsheitum, aðrir eftir aldri, aðrir eftir reynslu, aðrir eftir búsetu og svo framvegis. Góð blanda, það er málið!

 

Ábyrgðin er mikil. Við erum öll kölluð til þeirrar ábyrgðar sem felst í því að vanda valið, mæta á kjörstað eða kjósa utan kjörstaða dagana á undan sjálfum kosningunum. Þau okkar sem eru í framboði hafa sömu ábyrgð, en auk þess - og það sér í lagi - þurfum við að gæta þess að koma fram af heiðarleika, vanda vinnubrögðin, sýna samstarfs- og samræðuvilja og kunna að hlusta á aðra.

 

Minn uppáhaldsreitur á Íslandi er í Skíðadal í nágrenni Dalvíkur. Á björtum sumardegi þegar léttur andvari blæs um berjamóinn, finnst mér Ísland vera paradís. Á margan hátt getur Ísland verið paradís, það er okkar að byggja upp framtíðina!

 

 

Höfundur er djákni í Glerárkirkju og Evrópufræðingur (MA.)