
Ólafur K. Magnússon, ljósmyndari Morgunblaðsins 1947 til 1996, tók á ferli sínum ótal ljósmyndir af Jóhannesi S. Kjarval og varð þeim vel til vina. Í viðamiklu filmusafni Ólafs er því að finna fjölda merkra ljós-mynda af Jóhannesi Kjarval og hafa fæstar þeirra komið fyrir augu almennings. Hér birtast meðal annars myndir sem Ólafur tók af heimsókn á vinnustofu Kjarvals við Sigtún sumarið 1968.






