
Kúba stendur á þröskuldi mikilla breytinga. Íbúana dreymir um það eitt að flytja annað, efnahagskerfi sósíalismans er löngu hrunið, mannréttindi eru háð duttlungum valdhafa, búðahillurnar eru tómar og það eina sem tórir er gamall og þrjóskur einræðisherra. En hvernig er ástandið á Kúbu í augum ferðamanna sem eru orðnir stærsta auðlind þjóðarinnar. Pétur Blöndal blaðamaður og Þorkell Þorkelsson ljósmyndari dvöldust á Kúbu um skeið og hefur hvor sína söguna að segja, annar í máli og hinn í myndum.






