Samkomulag hefur náðst milli stjórnmálaflokkanna á Alþingi um að leyfa persónukjör fyrir komandi þingkosningar. Samkomulagið felur í sér að fólk fær að raða á lista eftir skoðunum sínum.
Þetta verður kynnt með formlegum hætti síðar en fólk getur nú þegar byrjað að raða á framboðslista gegnum mbl.is, sem hefur gert samstarfssamning við stjórnvöld. Í tengslum við þetta hefur sérvefur verið búin til á mbl.is þar sem almenningi gefst kostur á að raða á listana og hafa þar með áhrif.