Everton í annað sæti

Frá rimmi Everton og Liverpool á Goodison Park í dag.
Frá rimmi Everton og Liverpool á Goodison Park í dag. AP

Everton var rétt í þessu að leggja granna sína í Liverpool að velli, 1:0, á heimavelli sínum, Goodison Park. Það var miðjumaðurinn lee Carlsey sem skoraði sigurmarkið á 68. mínútu. Með sigrinum, sem var sá fyrsti hjá Everton á Liverpool í fimm ár, komst liðið uppfyrir Arsenal í annað sæti deildarinnar. Chelsea hefur 39 stig, Everton 36 og Arsenal 34 en Arsenal og Chelsea eigast við á Highbury á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert