[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

skak.is

Skák.is | 9.2.2010
Páll efstur á Skákþingi Reykjanesbæjar 
Skák.is Páll Sigurðsson (1854) er efstur með 4½ vinning að lokinni fimmtu umferð Skákþings Reykjanesbæjar sem fram fór í gærkvöldi. Einar S. Guðmundsson (1700) og Emil Ólafsson koma næstir með 4 vinninga en Emil hefur komið verulega á óvart með frábærri… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Ólafur Stefánsson, Arnór Atlason og Ásgeir Örn Hallgrímsson leika e.t.v. við Frakka í Egilshöll í apríl.

Ólafur Stefánsson, Arnór Atlason og Ásgeir Örn Hallgrímsson leika e.t.v. við Frakka í Egilshöll í apríl. Kristinn Ingvarsson

Mætir íslenska bronsliðið þreföldum meisturum í Egilshöll?

Til athugunnar er að báðir vináttulandsleikir Íslendinga við heims., Evrópu,-og ólympíumeistara Frakka í handknattleik karla, sem fram fara hér á landi 16. og 17. apríl, verði háðir í Egilshöll. Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hefur óskað eftir tilboði frá sænsku fyrirtæki um leigu á sætum fyrir 7.000 áhorfendur og sérstöku keppnisgólfi fyrir handknattleik sem hægt væri að setja upp í Egilshöllinni vegna leikjanna. Meira
Íþróttir | mbl | 9.2 | 12:19

Berglind Íris valin best

Berglind Íris Hansdóttir markvörður úr Val.

Berglind Íris Hansdóttir, markvörður Vals og íslenska landsliðsins, var valin besti leikmaður annars þriðjung N1-deildar kvenna í handknattleik, en tilkynnt var um valið fyrir fáeinum mínútur. Berglind Íris var einnig valinn besti leikmaður fyrsta þriðjungs mótsins. Stefán Arnarson, þjálfari Vals, efsta liðs deildarinnar, var valinn besti þjálfarinn. Meira

Íþróttir | mbl | 8.2 | 23:16

Rúnar Sigtryggsson: Snerist um að sýna hvað í mönnum býr

Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar.

„Ég sagði við strákana fyrir leikinn að nú mundi þetta snúast um hvað býr í mönnum eftir dapran leik í síðustu umferð og þeir sýndu það í þessum leik,“ sagði Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, eftir stórsigur sinna manna á Gróttu, 33:19 í N1 deild karla í handknattleik en liðin mættust á Akureyri í kvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 8.2 | 23:04

Patrekur: Verðum að nýta færin okkar

Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, ræðir við sína menn.

„Til þess að vinna leiki þá verðum við að gera meira en að leika góða vörn. Við verðum einnig að nýta hraðaupphlaup sem við fáum í leikjum og fleiri góð færi," sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, eftir fimm marka tap, 24:19, fyrir Val í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 8.2 | 22:45

Erfitt en vorum með tak á leiknum

Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, baðar úr höndunum.

„Þetta var erfitt hjá okkur en mér fannst við hafa þó tak á leiknum lengst af en vissulega hefði ég viljað sjá mína menn gefa aðeins í ná meira forskoti en raun varð á,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, eftir sigur á Stjörnunni, 24:19, í N1-deild karla í handknattleik í Vodafone-höllinni í kvöld. Með sigrinum komst Valur upp í annað sæti deildarinnar en er sem fyrr þremur stigum á eftir Haukum sem tróna á toppnum. Meira

Íþróttir | mbl | 8.2 | 22:39

Björgvin: Endaði eins og best verður á kosið

Haukarnir fagna ógurlega eftir sigurinn á FH í kvöld.

,,Ég ákvað bara að láta vaða og það var virkilega sætt að sjá boltann í netinu," sagði Björgvin Hólmgeirsson, leikmaður Hauka, við mbl.is. eftir sigur Hauka á FH í æsispennandi leik í Kaplakrika í kvöld. Björgvin var hetja Haukanna en hann skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins. Meira

Íþróttir | mbl | 9.2 | 10:20

Barrufet hættir eftir sigursælan feril

David Barrufet lokar á leikmann króatíska landsliðsins á HM í fyrra.

Spænski handknattleiksmarkvörðurinn David Barrufet hefur ákveðið að hætta að segja skilið við handknattleik í vor og snúa sér að öðrum hugðarefnum. Barrufet er á fertugasta aldursári og hefur verið einn fremsti markvörður Evrópu um langt árabil. Hann hefur verið leikið með Barcelona í 22 ár og unnið með félaginu um 70 titla. Auk þess á Barrufet að baki 280 landsleiki fyrir Spán. Meira

Íþróttir | mbl | 8.2 | 22:27

Einar: Höfum ekki endalausan tíma

Einar Jónsson þjálfari Fram.

Einar Jónsson þjálfari Framara var að vonum svekktur eftir naumt tap gegn HK í Digranesinu í kvöld, 28:27, þar sem liðin áttust við í N1-deild karla í handknattleik. Hann segir sóknarleik sinna manna hafa verið allt of slakan og að frammistaða dómara leiksins hafi ekki hjálpað til. Meira