Stórleikur Helenu dugði ekki til
LeBron James bætti met Kobe Bryant
LeBron James leikmaður Cleveland Cavaliers bætti met í NBA deildinni í nótt þegar hann skoraði sitt 15.000 stig á ferlinum. Hann er sá yngsti í sögu NBA sem nær þessum áfanga. Meira
Johnson tryggði Atlanta sigur, myndband
Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Mesta spennan var í leik Atlanta og Charlotte þar sem að Joe Johnson tryggði Atlanta sigur með skoti á síðustu sekúndbrotum framlengingar. Michael Jordan eigandi Charlotte var á meðal áhorfenda í Atlanta en hann ætlar sér stóra hluti með Charlotte liðið. Meira
Henning: Átti að hvíla lykilmenn
Henning Henningsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Hauka er kominn í sumarfrí eftir þriðja tapið fyrir KR í þriðja leik liðanna um sæti í úrslitum Íslandsmótsins en KR vann 63:61 í Vesturbænum. Þjálfarinn var stoltur af liði sínu og tók á sig sök. Meira
Benedikt: Hraunaði yfir þær í fyrsta sinn
„Ég verð að segja að við mættum skelfilegar til leiks, ég trúði hvað við vorum hauslausar í fyrsta leikhluta með tapaða bolta, vítum sem klikkuðu, sniðskotum og bara öllu enda vorum við heppnar að vera ekki meira en átta stigum undir í hálfleik. Þetta varð hreinlega svakalegur leikur því fyrsti leikurinn okkar við Hauka gaf engan veginn rétta mynd af þessum tveimur liðum enda fengum við svo tvo hörkuleiki eftir það,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR-kvenna í körfubolta sem tryggðu sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins með þriðja sigri sínum á Haukum í Vesturbænum í kvöld. Meira
Óvæntur sigur Þórs Þ. gegn Haukum
Þór frá Þorlákshöfn lagði Hauka á útivelli í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta í kvöld í leik þar sem að varnarleikurinn var í hávegðum hafður. Lokatölur 56:55. Haukar skoruðu aðeins 6 stig í þriðja leikhluta og alls 17 stig í síðari hálfleik. Þórsarar skoruðu 19 stig í fyrri hálfleik. Meira
KR sló Íslands- og bikarmeistarana út 3:0
Þriðji leikur KR og Hauka í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik hófst í DHL-höllinni klukkan 19:15. KR sigraði 63:61 og 3:0 í rimmunni. Titilvörn Íslands- og bikarmeistara Hauka er því lokið. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is. Meira
Keflavík vann í Hveragerði eftir framlengdan leik
Þriðji leikur Hamars og Keflavíkur í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik hófst í Hveragerði klukkan 19:15. Keflavík sigraði 103:101 eftir framlengingu og mikla spennu. Staðan er í rimmunni er 2:1 fyrir Keflavík en vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslit. Meira
Leikdagar í átta liða úrslitum úrvalsdeildar karla
Mótanefnd KKÍ hefur ákveðið leikdaga í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla. Tvo sigra þarf til þess að komast áfram í undanúrslit. Deildarmeistaralið KR mætir ÍR sem endaði í áttunda sæti á fimmtudaginn í næstu viku. Keflavík, sem endaði í öðru sæti, mætir liði Tindastóls sama dag. Grindavík og Snæfell sem enduðu í þriðja og sjötta sæti mætast föstudaginn 26. mars, líkt og Stjarnan og Njarðvík sem enduðu í fjórða og fimmta sæti. Meira
19.3.2010
18.3.2010
- Teitur: Ég þekki alla í Njarðvík
- „Ekkert er skemmtilegra en Reykjavíkurslagurinn“
- „Sterkt lið dettur út í 8-liða úrslitum“
- Karl: Ánægður með fjóra sigra í röð
- Bárður: Hársbreidd frá úrslitakeppninni
- KR-ingar deildarmeistarar
- Góður sigur Stólanna
- ÍR í úrslitakeppnina eftir sigur á Grindavík
- Monty og Pavin ánægðir með að Tiger skuli snúa aftur
- Spenna fyrir lokaumferðina í úrvalsdeild karla
- Michael Jordan keypti Charlotte Bobcats
- Cleveland tryggði sér sigur í Miðdeildinni
17.3.2010
- TCU mætir Dayton í fyrstu umferð
- George Karl snéri aftur eftir krabbameinsmeðferð
- Ólafur fær alltént eitt mótframboð
- LeBron James með þrefalda tvennnu
16.3.2010
- Keflavík jafnaði metin gegn Hamri
- KFÍ skiptir um þjálfara
- Boston í stuði en Lakers marði sigur
- Helena og samherjar í úrslitakeppnina
15.3.2010
- „Sýndum mikinn sigurvilja“
- Pavel: Fannst á tímabili að þeir gætu ekki klikkað
- Keflvíkingar sigruðu í Vesturbænum
- Tindastóll lagði ÍR að velli
- Krækir KR í titilinn í kvöld?
- Cleveland lagði Boston sannfærandi
- Heather Ezell: Erfitt að byrja svona







Senda inn efni