Bandaríska knattspyrnukonan Hannah Sharts er gengin til liðs við portúgalska félagið Racing Power frá Stjörnunni, þar sem hún lék á nýafstöðnu tímabili.
Sharts er 25 ára gömul og leikur í stöðu miðvarðar. Lék hún 18 leiki í Bestu deildinni og skoraði í þeim þrjú mörk auk þess að spila einn bikarleik.
Racing Power er í Seixal-borg í Portúgal og hafnaði í þriðja sæti í efstu deild á síðasta tímabili.
Liðið er sem stendur í sjöunda sæti með tvö stig eftir tvær umferð.