Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með dómaraflautuna þegar Keflavík og Afturelding mætast í úrslitum umspilsins um sæti í Bestu deild karla í knattspyrnu á Laugardalsvelli á morgun.
Honum til halds og trausts verða aðstoðardómararnir Ragnar Þór Bender og Eysteinn Hrafnkelsson. Fjórði dómari verður Elías Ingi Árnason og Hjalti Þór Halldórsson verður eftirlitsmaður.
Keflavík hafnaði í 2. sæti 1. deildarinnar og hafði betur gegn ÍR í undanúrslitum umspilsins en Afturelding hafnaði í 4. sæti deildarinnar og lagði Fjölni í undanúrslitunum.
Leikur Keflavíkur og Aftureldingar hefst klukkan 14 á morgun og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.