Haraldur áfram með Grindavík

Haraldur Árni Hróðmarsson hefur framlengt við Grindavík.
Haraldur Árni Hróðmarsson hefur framlengt við Grindavík. Ljósmynd/Knattspyrnudeild Grindavíkur

Haraldur Árni Hróðmarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Knattspyrnudeild Grindavíkur og mun hann því stýra félaginu á komandi tímabili í Lengjudeild karla.

Haraldur Árni tók við Grindavík á miðju síðasta tímabili og endaði liðið í níunda sæti deildarinnar undir hans stjórn.

Þá mun Marko Valdimar Jankovic áfram vera aðstoðarþjálfari liðsins en hann og Haraldur unnu einnig saman á síðustu leiktíð.

„Það er mjög ánægjulegt að Haraldur og Marko muni áfram stýra okkar karlaliði á næstu leiktíð. Þeir eru báðir mjög efnilegir þjálfarar og með mikla ástríðu fyrir verkefninu,“ sagði Haukur Guðberg Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

„Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hjá félaginu þá lítum við björtum augum til framtíðar og stefnum ótrauð að því að koma félaginu aftur heim til Grindavíkur þegar aðstæður leyfa,“ sagði Haukur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka