Skrifar undir hjá Íslandsmeisturunum

Óli Valur Ómarsson í leik með Stjörnunni.
Óli Valur Ómarsson í leik með Stjörnunni. mbl.is/Óttar Geirsson

Óli Valur Ómarsson er genginn til liðs við Íslandsmeistara Breiðabliks og skrifar undir fjögurra ára samning við félagið. Hann kemur frá Sirius í Svíþjóð.  

Óli Valur, sem er 21 árs, var á láni hjá uppeldisfélaginu Stjörnunni í sumar og skoraði fimm mörk í 17 leikjum fyrir félagið.   

Hann á 28 landsleiki að baki með öllum yngri landsliðum Íslands og hefur skorað í þeim tvö mörk. 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka