Úr Njarðvík í Keflavík

Hreggviður Hermannsson, númer 24, fagnar marki með Njarðvíkingum.
Hreggviður Hermannsson, númer 24, fagnar marki með Njarðvíkingum. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnumaðurinn Hreggviður Hermannsson er genginn til liðs við Keflavík frá nágrönnunum í Njarðvík. 

Hreggviður er uppalinn Keflvíkingur, 24 ára gamall, en hann gekk í raðir Njarðvíkinga sumarið 2021 og hafði áður leikið með Víði í 2. deildinni, ásamt nokkrum leikjum með Keflavík í 1. deild árið 2019. Hann á að baki 87 leiki í 1. og 2. deild og hefur skorað í þeim tvö mörk.

Hreggviður er að upplagi bakvörður en getur leyst margar stöður á vellinum, samkvæmt tilkynningu Keflavíkur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka