Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn og núverandi sparkspekingurinn Landon Donovan vakti athygli fyrir heldur sérstaka hárgreiðslu þegar hann vann við umfjöllun á leik Austurríkis og Frakklands í D-riðli EM 2024 fyrir Fox Sports í gærkvöldi.
Á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, var miskunnarlaust gert grín að Donovan og fann fyrrverandi liðsfélagi hans hjá LA Galaxy, Mike Magee, sig knúinn til þess að benda honum á það.
Sorry @landondonovan 😂 pic.twitter.com/VGj2AFwWhs
— Mike Magee (@magee18) June 18, 2024
„LD, skoðaðu Twitter sem snöggvast og rektu kannski rakarann þinn,“ sendi Magee á Donovan.
„Hvar varst þú fyrir sjö klukkustundum? Ég fór í hárígræðslu fyrir tveimur vikum og var tjáð að það myndi ekki sjást í myndavél,“ svaraði Donovan.
Skjáskot af samskiptum Magees og Donovans má sjá hér fyrir ofan ásamt skjáskoti af hárgreiðslu þess síðarnefnda sem vakti svo mikla athygli.