Chelsea er komið upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir sannfærandi útisigur á West Ham, 3:0, í Lundúnaslag í dag.
Nicolas Jackson var í miklu stuði í dag. Hann gerði fyrsta markið á 4. mínútu, eftir stoðsendingu frá Jaidon Sancho, og bætti svo við öðru markinu á 18. mínútu.
Jackson var ekki hættur því hann lagði upp þriðja markið á Cole Palmer á 47. mínútu og þar við sat.
Chelsea er með tíu stig, eins og Arsenal og Newcastle, en með betri markatölu. Þá eiga þau einnig leik til góða. Manchester City er á toppnum með tólf stig.