Willum lagði upp í sigri

Willum Þór Willumsson lagði upp fyrir Birmingham í dag.
Willum Þór Willumsson lagði upp fyrir Birmingham í dag. Ljósmynd/Birmingham

Íslenski landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson lagði upp annað mark Birmingham í 2:0-sigri liðsins gegn Rotherham í ensku C-deildinni í dag. 

Tomoki Iwata kom Birmingham yfir á 14. mínútu. Jay Stansfield tvöfaldaði síðan forystu Birmingham á 22. mínútu eftir stoðsendingu frá Willumi Þór.  

Willum Þór spilaði allan leikinn fyrir Birmingham en Alfons kom inn á 79. mínútu.  

Jason Daði spilaði í sigri

Jason Daði Svanþórsson spilaði fyrstu 86 mínúturnar í 1:0-sigri Grimsby á Bromley í ensku D-deildinni í dag. Danny Rose skoraði mark Grimsby.  

Í ensku B-deildinni var Guðlaugur Victor Pálsson ónotaður varamaður hjá Plymouth í 1:0-tapi liðsins gegn West Bromwich Albion. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert