Verður einn sá launahæsti

Anthony Gordon mun eiga fyrir salti í grautinn.
Anthony Gordon mun eiga fyrir salti í grautinn. AFP/Justin Tallis

Enski knattspyrnumaðurinn Anthony Gordon hefur samþykkt nýtt samningstilboð úrvalsdeildarfélagsins Newcastle.

Mun hann á næstu dögum skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið og hækka duglega í launum fyrir vikið.

Ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá að Gordon verði einn launahæsti leikmaður Newcastle. Kantmaðurinn fær væntanlega um níu milljónir punda í árslaun, eða um 1,7 milljarð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert