Enski knattspyrnumaðurinn Trent Alexander-Arnold vill vera áfram í herbúðum uppeldisfélags síns Liverpool á næstu leiktíð.
Það er Football Insider sem greinir frá þessu en samningur Alexanders-Arnolds, sem er 24 ára gamall, við Liverpool rennur út í sumar.
Hann hefur verið sterklega orðaður við stórlið Real Madrid á Spáni en bakvörðurinn er uppalinn hjá Liverpool og hefur leikið með liðinu allan sinn feril.
Forráðamenn Liverpool eru sagðir leggja mikla áherslu á það að endursemja við bakvörðinn en hann er varafyrirliði liðsins.
Alexander-Arnold hefur verið lykilmaður í liði Liverpool síðustu ár og á að baki 316 leiki fyrir félagið þar sem hann hefur skorað 19 mörk og lagt upp önnur 36. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Bítlaborgarliðinu.