Niðurlæging á Old Trafford

Liðsmenn Tottenham fagna fyrsta marki leiksins í dag.
Liðsmenn Tottenham fagna fyrsta marki leiksins í dag. AFP/Paul Ellis

Manchester United tók á móti Tottenham á Old Trafford vellinum í Manchester í dag. Leikurinn var hluti af sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta og endaði hann með sigri Tottenham, 3:0.

Eftir sigurinn er Tottenham í 8. sæti deildarinnar með tíu stig en Manchester United situr í því 12. með sjö stig.

Leikurinn fór afskaplega fjörlega af stað en fyrsta markið kom á þriðju mínútu og voru það gestirnir sem skoruðu það. Brennan Johnson kom þá boltanum í netið eftir frábæran sprett og fyrirgjöf frá hollenska miðverðinum Micky Van de Ven.

Micky Van de Ven fagnar eftir að hafa lagt upp …
Micky Van de Ven fagnar eftir að hafa lagt upp fyrsta mark leiksins. AFP/Paul Ellis

Johnson var nálægt því að skora annað mark sitt þegar hann átti skot í stöng á 20. mínútu leiksins.

Alejandro Garnacho fékk hættulegasta færi heimamanna í fyrri hálfleik þegar hann átti hörkuskot í stöngina eftir fyrirgjöf frá Marcus Rashford á 37. mínútu.

Tveimur mínútum síðar slapp Timo Werner einn í gegn frá miðju vallarins en Þjóðverjinn hafði of mikinn tíma til að hugsa hvernig hann ætti að klára færið og lét Andre Onana, markvörð Manchester United, verja frá sér.

Á 42. mínútu átti sér stað afar umdeilt atvik en þá fékk fyrirliði Manchester United, Bruno Fernandes, beint rautt spjald fyrir tæklingu á James Maddison. Fernandes virtist hafa runnið til í tæklingunni og fór hann hátt upp með sólann og sparkaði í legginn á Maddison. Í fyrstu þá leit þetta út fyrir að vera rautt spjald en í endursýningum mátti sjá að snertingin var ekki mikil. Dómurinn stóð þó engu síður og heimamenn manni færri.

Bruno Fernandes gengur niðurlútur af velli eftir að hafa verið …
Bruno Fernandes gengur niðurlútur af velli eftir að hafa verið rekinn útaf. AFP/Paul Ellis

Seinni hálfleikur var ekki nema þriggja mínútna gamall þegar Dejan Kulusevski hafði tvöfaldað forystu Tottenham. Brennan Johnson slapp þá upp hægri kantinn og kom boltanum fyrir markið þar sem sænski landsliðsmaðurinn kom boltanum í netið framhjá Onana í markinu.

Dominik Solanke skoraði þriðja mark Tottenham á 77. mínútu. Lucas Bergvall tók þá hornspyrnu sem rataði á kollinn á Pape Sarr sem flikkaði boltanum í hlaupaleiðina fyrir Solanke. Enski framherjinn tímasetti hlaupið sitt mjög vel, kom boltanum í netið og innsiglaði verðskuldaðan sigur Tottenham í dag.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Þróttur R. 0:0 Þór/KA opna
90. mín. Leik lokið
Vestri 2:1 HK opna
90. mín. Sergine Modou Fall (Vestri) fær gult spjald
KR 7:1 Fram opna
90. mín. Orri Sigurjónsson (Fram) fær rautt spjald Keyrir í bakið á Aroni. Kjánalegt og hann veit upp á sig sökina. Hans annað gula spjald. Kom inn á sem varamaður fyrir seinni hálfleikinn.
FH 0:1 Breiðablik opna
59. mín. Baldur Kári Helgason (FH) fær gult spjald
Fylkir 1:3 KA opna
90. mín. Fylkir fær víti Dagur brýtur á Ragnari og fær rautt spjald.
Valur 0:0 Víkingur R. opna
1. mín. Leikur hafinn Víkingur byrjar með boltann. Svartklæddir Víkingar sækja í áttina að Vesturbæ. Rauðklæddir Valsarar sækja í áttina að Öskjuhlíð.

Leiklýsing

Man. United 0:3 Tottenham opna loka
90. mín. Dominic Solanke (Tottenham) á skot sem er varið Dauðafæri! Solanke sleppur einn í gegn og á skot en Onana ver enn og aftur. Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda hvað Tottenham væri búið að skora mörg í dag ef ekki væri fyrir Onana.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert