Leikjum á Englandi frestað vegna veðurs

Arnór Sigurðsson leikur með Blackburn.
Arnór Sigurðsson leikur með Blackburn. AFP/Paul Ellis

Þremur leikjum á Englandi hefur verið frestað vegna óveðurs á Bretlandseyjum um helgina.

Leik Blackburn Rovers, liðs Arnórs Sigurðssonar, og Portsmouth í ensku B-deildinni var frestað þar sem völlur Blackburn er á floti.

Sömuleiðis var leikjum Bradford City gegn Accrington Stanley og Fleetwood Town gegn MK Dons í ensku D-deildinni frestað.

Engum leikjum í ensku úrvalsdeildinni hefur verið frestað en fimm leikir fara fram klukkan 15.00 í dag. Manchester City mun síðan fá Tottenham í heimsókn klukkan 17.30 í aðalleik dagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka