Arteta: Undir mér komið

Mikel Arteta og Raheem Sterling.
Mikel Arteta og Raheem Sterling. AFP/Samsett mynd/Paul Ellis/Benjamin Cremel

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal, segir það vera undir sér komið að spila sóknarmanninum Raheem Sterling meira. 

Sterling gekk í raðir Arsenal undir lok félagaskiptagluggans en hann er á láni út tímabilið frá Chelsea. 

Hann hefur hins vegar fengið fá tækifæri í liði Arsenal en þrátt fyrir það segist Arteta vera ánægður með leikmanninn. 

„Ég væri til í að sjá hann meira, en það er undir mér komið. Hann er að reyna sitt besta og hefur verið frábær liðsfélagi. Nú er kominn tími fyrir mig til að gefa honum fleiri mínútur,“ sagði Arteta á blaðamannafundi. 

Arsenal mætir West Ham á London-leikvanginum klukkan 17.30 á morgun. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka