Voru KR-ingar í fóstri hjá KFUM?

Vígalegir Framarar í fullum skrúða árið 1911.
Vígalegir Framarar í fullum skrúða árið 1911.

Í kvöld klukkan 21.00 verður fluttur fyrirlestur í Borgarskjalasafni sem nefnist „Í knattspyrnu á kúskinnsskóm" en hann er hluti af svokallaðri safnanótt í Reykjavík í kvöld og nótt.

Þar mun Þórarinn Björnsson, skjalavörður á Borgarskjalasafni, fjalla á myndrænan hátt um heimildir sem varpa nýju ljósi á frumbernsku knattspyrnuiðkunar Íslendinga um og uppúr næstsíðustu aldamótum.

Rætt verður um skrautlegan fótbúnað leikmanna, fyrstu boltana, elstu varðveittu lög íslensk knattspyrnufélags og sitthvað fleira.

Sérstök áhersla verður lögð á upphaf Vals og KR og tengsl félaganna við séra Friðrik Friðriksson og KFUM. Færð verða rök fyrir því að á tímabili hafi KFUM tekið KR í fóstur og til sýnis verða nokkur skjöl því til stuðnings.

Einnig verða sýnd nokkur af elstu varðveittu skjölum Vals sem ekki hafa sést áður opinberlega.

Fyrirlesturinn fer fram í húsakynnum Borgarskjalasafns á 3. hæð í Grófarhúsinu við Tryggvagötu 15, sama hús og Borgarbókasafnið er í, og hefst klukkan 21. Þar eru allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert