

Ahmed Hassan. fyrirliði egypska landsliðsins, hóf Afríkubikarinn hátt á loft eftir að lið hans sigraði í keppninni. Úrslitaleikurinn var gegn landsliði Ghana og fór hann fram í Luanda, höfuðborg Angóla í dag. Reuters
Egyptar urðu Afríkumeistarar
Bloggað um fréttina
-
Sigurður F. SigurðarsonGreyið Kínverjarnir
Gríðarlegur fögnuður braust út í Kaíró í Egyptalandi í dag þegar landslið Egypta í knattspyrnu sigraði landslið Ghana 1-0 í keppni um Afríkubikarinn. Egyptar urðu þar með Afríkumeistarar í knattspyrnu í þriðja skiptið í röð. Þeir hafa unnið titilinn alls sjö sinnum.
Hávær fagnaðaróp brutust út um alla Kaíró þegar þjóðhetjan Mohammed „Gedo“ Nagy skoraði sigurmarkið á 85. mínútu. Það tryggði Faraóunum sigur í úrslitaleiknum sem fram fór í höfuðborg Angóla.
Egyptar þustu út á götur, dönsuðu og börðu bumbur, allt frá Giza syðst í landinu til Nasr borgar í norðri. Fólkið réði sér ekki fyrir kæti þar sem það dansaði um sveipað þjóðfánanum og sprengjandi kínverja.
Mannfjöldinn hrópaði „Egyptaland, Egyptaland“ á götum Dokki hverfisins og tafði bílaumferðina. Ljósvakamiðlar spiluðu ættjarðarlög og Hosni Mubarak forseti sendi landsliðinu heillaóskir.
Til baka







Senda inn efni