Atli á leið til Tromsö
Norskir fjölmiðlar greina frá því í dag að FH-ingurinn Atli Guðnason, besti leikmaðurinn Íslandsmótsins í knattspyrnu á síðustu leiktíð, sé á leið til skoðunar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Tromsö. Atli er væntanlegur til liðsins á sunnudag en fram kemur á heimasíðu Tromsö að félagið hafi þegar komist að samkomulagi við FH-inga um kaupverð á leikmanninum.
Forráðamenn Tromsö settu sig í samband við Tryggva Guðmundsson og fengu álit hans á Atla en saman hafa þeir leikið með FH-ingum undanfarin. Tryggvi lék á árum áður með Tromsö við góðan orðstír en ákvað í haust að segja skilið við FH og ganga í raðir sinna gömlu félaga í ÍBV.
,,Atli er fljótur, óúreiknanlegur kantmaður og er afar vinnusamur. Hann hentar vel í leikkerfið 4:3:3,“ segir Morten Kræmer, yfirmaður knattspyrnumála hjá Tromsö.
Atli er 26 ára gamall og lék sinn fyrsta A-landsleik í nóvember þegar Íslendingar töpuðu vináttuleik gegn Írönum. Hann lék 20 leiki með FH í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði 11 mörk.
Til baka







Senda inn efni
