Þróttur eygir von eftir sigur á ÍR
Þróttarar eygja enn von um að komast í undanúrslitin í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu eftir góðan sigur á ÍR-ingum, 4:1, í Egilshöllinni í kvöld.
Þróttarar eru þá komnir með 4 stig og eiga eftir að mæta Víkingum sem eru líka með 7 stig. Þróttur þarf þriggja marka sigur til að skáka Víkingum á markatölu. KR er með 7 stig og á eftir að mæta Val, sem líka getur náð 7 stigum, þannig að fjögur lið af fimm eiga enn möguleika á að fara uppúr riðlinum.
Haukur Ólafsson kom ÍR yfir en Eysteinn Pétur Lárusson jafnaði fyrir Þróttara. Andrés Vilhjálmsson kom þeim yfir og Hörður Bjarnason, fyrrum leikmaður Víkings R. og Breiðabliks, skoraði tvö síðustu mörkin.
Til baka







Senda inn efni
