

Pétur Pétursson og Ólafur Jóhannesson geta verið tiltölulega sáttir við þau lið sem Ísland mætir í undankeppni EM. Ómar Óskarsson
Mæta Portúgal og Kýpur í fyrsta sinn
Íslendingar mæta Portúgölum og Kýpurbúum í fyrsta sinn í undanakeppni stórmóts í knattspyrnu en dregið var í riðla í undankeppni EM 2012 í Varsjá í Póllandi í morgun. Úrslitakeppnin verður haldin í Póllandi og Úkraínu árið 2012. Danir og Norðmenn eru H-riðli ásamt Íslandi, Portúgal og Kýpur.
Þetta er í fjórða sinn sem Ísland er í riðli með Noregi í undankeppni stórmóts, en Íslendingar voru í riðli með Noregi í undankeppni HM 2010. Danir hafa tvívegis áður verið með Íslandi í riðli í undankeppni stórmóts. Portúgal og Kýpur hafa hinsvegar aldrei verið í riðli með Íslendingum í riðli í undankeppni stórmóts.
Til baka







Senda inn efni