Ólafur mjög ánægður með riðilinn
Ólafur Jóhannesson sagðist í samtali við mbl.is vera mjög ánægður með riðil Íslands í undankeppni EM í knattspyrnu karla en dregið var í dag. Ísland er í riðli með Portúgal, Danmörku, Noregi og Kýpur. Ísland dróst því aftur í fimm liða riðil en nokkrir riðlanna eru sex liða riðlar.
„Ég er mjög ánægður með riðilinn. Auðvitað hefðum við viljað vera í sex liða riðli en það er ágætt að vera í góðum fimm liða riðli. Maður hefði getað lent í hundleiðinlegum sex liða riðli, þannig að þetta er fínt, “ sagði Ólafur þegar mbl.is sló á þráðinn til hans.
Rætt er við Ólaf í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.
Til baka







Senda inn efni
