Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir spilaði sinn fyrsta leik í hálft annað ár í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Dagný lék fyrri hálfleikinn með West Ham er liðið heimsótti Manchester United í fyrstu umferðinni í dag.
Því miður fyrir íslensku landsliðskonuna og liðsfélaga hennar máttu þær þola tap, 3:0.