Cracovia fór upp að hlið toppliðs Lech Poznan með útisigri á Puszcza, 2:1, í pólsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Davíð Kristján Ólafsson lék seinni hálfleikinn með Cracovia sem hefur unnið fjóra leiki af síðustu fimm.
Liðið er með 19 stig eftir níu leiki. Davíð og félagar enduðu í 13. sæti á síðustu leiktíð en yfirstandandi tímabil byrjar mun betur.