Real Madrid með sannfærandi sigur

Kylian Mbappé skoraði fjórða mark Real Madrid í kvöld.
Kylian Mbappé skoraði fjórða mark Real Madrid í kvöld. AFP/Thomas Coex

Real Madrid lagði Espanyol að velli, 4:1, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu á Santiago Bernabéu í kvöld.

Espanyol komst óvænt yfir á 54. mínútu en Belginn Thibaut Courtois varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.  

Real Madrid jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar með marki frá Dani Carvajal. Rodrygo kom síðan Real Madrid yfir með marki á 75. mínútu.  

Varamaðurinn Vinícius Junior skoraði þriðja mark Real Madrid á 78. mínútu. Frakkinn Kylian Mbappé gerði endanlega út um leikinn á 90. mínútu með marki af vítapunktinum. 

Real Madrid situr í öðru sæti deildarinnar með 14 stig, stigi á eftir Barcelona sem á leik til góða.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert