AC Milan vann nágrannaslaginn, 2:1, gegn Inter Milan í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í Mílanó í kvöld.
Bandaríski landsliðsmaðurinn Christian Pulisic kom AC Milan yfir á 10. mínútu. Federico Dimarco jafnaði metin fyrir Inter á 27. mínútu.
Staðan í hálfleik var 1:1.
Sigurmark AC Milan kom á 89. mínútu en varnarmaðurinn Matteo Gabbia skoraði það. Fleiri urðu mörkin ekki og lokaniðurstaðan var 2:1-sigur AC Milan.
Úrslitin þýða að AC Milan situr nú í sjöunda sæti með átta stig, einu sæti á eftir Inter með jafn mörg stig.