Knattspyrnumaðurinn Brynjólfur Willumsson átti erfiðan dag en hann kom inn á af bekknum hjá Groningen í hollensku deildinni í 2:1-tapi gegn Heerenveen.
Brynjólfur kom inn á á 60. mínútu í stöðunni 1:1 en Groningen misstu Marvin Peersman út af þremur mínútum síðar eftir að hann fékk beint rautt spjald.
Heerenveen komst, 2:1, yfir á 69. mínútu og á 82. mínútu fékk BRynjólfur einnig beint rautt spjald fyrir tæklingu og Groningen-menn kláruðu leikinn 9 gegn 11.
It's a red card for Willumsson #heegro pic.twitter.com/nSgN6LHx86
— Football 24/7 (@Foet247Benelux) September 22, 2024
Brynjólfur verður í banni gegn Go Ahead Eagles í næsta leik en það er fyrrum félag Willum Þórs Willumssonar sem er eldri bróðir Brynjólfs.
Groningen er í sjötta sæti með níu stig eftir sex leiki.