Willum Þór Willumsson lagði upp glæsilegt mark í 2:0-sigri Birmingham City gegn Rotherham í ensku C-deildinni í gær.
Willum lagði upp seinna mark liðsins sem Jay Stansfield skoraði á 22. mínútu leiksins og skotið var jafn glæsilegt og stoðsendingin.
The assist. The finish. Both of them right out the top drawer.😮💨
— Birmingham City FC (@BCFC) September 21, 2024
Enjoy your night, Bluenoses. pic.twitter.com/pbtIupuRui
Willum hefur farið vel af stað með Birmingham en hann hefur lagt upp tvö mörk og skorað eitt í sex leikjum í deildinni.