Jóhann Berg Guðmundsson var á skotskónum fyrir Al Orobah er liðið tapaði 4:1 gegn Al-Qadisiya í 32-liða úrslitum sádi-arabíska bikarsins.
Al-Qadisiyah var með mikla yfirburði í leiknum og var staðan 4:0 þegar venjulegur leiktími var liðinn.
Á fjórðu mínútu uppbótartíma fékk Al Orobah víti og fór Jóhann Berg á vítapunktinn og skoraði.
Þetta var annað mark Jóhanns fyrir Al Orobah en hann skrifaði undir hjá félaginu í síðasta mánuði.