Júlíus Magnússon lagði upp annað mark Fredrikstad í 3:2-sigri liðsins gegn Viking í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Fredrikstad var 2:0-yfir í hálfleik en Júlíus lagði upp annað markið á Stian Stray Molde. Snemma í síðari hálfleik komst Fredrikstad í 3:0.
Viking náði undir lok leiks að minnka muninn í 3:2. Fredrikstad náði að halda út og tók stigin þrjú að lokum.
Júlíus spilaði allan leikinn fyrir Fredrikstad og bar fyrirliðabandið.
Úrslitin þýða að Fredrikstad er áfram í sjötta sæti með 34 stig eftir 22 leiki.