Albert Guðmundsson skoraði bæði mörk Fiorentina í fyrsta leik sínum með félaginu. Fiorentina hafði betur gegn Lazio, 2:1, í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag.
Bæði mörk Alberts komu úr vítaspyrnu en hann fiskaði fyrra vítið sjálfur.
Sigurinn í dag var fyrsti sigur Fiorentina á tímabilinu en félagið situr í 10. sæti með sex stig eftir fimm umferðir.
Hér fyrir neðan má sjá mörk Alberts.