Knattspyrnukonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir átti stórleik fyrir Harvard-háskólaliðið er það gerði jafntefli á útivelli gegn Santa Clara í bandaríska háskólaboltanum í nótt.
Áslaug Munda hefur verið mikið frá keppni undanfarið vegna meiðsla og veikinda og var því kærkomið fyrir hana að skora bæði mörk Harvard í 2:2-jafntefli.
Mörkin voru þau fyrstu hjá landsliðskonunni í rúm tvö ár. Þau má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.